Announcing: BahaiPrayers.net


More Books by Ridvan

1996-153BE
1997-154BE
1998-155BE
1999-156BE
2000-157BE
2001-158BE
2002-159BE
2003-160BE
2004-161BE
2005-162BE
2006-163BE
2007-164BE
2008-165BE
2009-166BE
2010-167BE
2011-168BE
2012-169BE
2013-170BE
2014-171BE
2015-172BE
2016-173BE
2017-174BE
2018-175BE
Free Interfaith Software

Web - Windows - iPhone








Ridvan : 2009-166BE
Allsherjarhús réttvísinnar
Ridvan 2009 / 166BE
Til bahá'ía um heim allan
Ástkæru vinir,

Fyrir aðeins þremur árum lögðum við þá áskorun fyrir bahá‘í heimssamfélagið að fullnýta aðgerðarammann sem var orðinn svo skýrt mótaður undir lok síðustu heimsáætlunar. Eins og við höfðum vonað voru viðbrögðin tafarlaus. Hvarvetna byrjuðu vinirnir af miklum krafti að vinna að því markmiði að hefja markvissar vaxtaáætlanir í minnst 1500 umdæmum um allan heim og fjöldi slíkra áætlana fór fljótt vaxandi. Þá gat engan rennt grun í þá djúptæku umbreytingu sem Drottinn allsherjar hafði í órannsakanlegri visku sinni fyrirhugað samfélagi sínu á svo skömmum tíma. Hve stefnufast og fullvissað var ekki það samfélag sem fagnaði þeim árangri sem það hafði náð við miðbik núverandi áætlunar á fjörutíu og einni ráðstefnu um gervallan heim! Þvílíkur reginmunur var ekki á samheldni þess og krafti í samanburði við ráðleysi og glundroða heims sem sogaðist inn í hringiðu kreppu! Þetta var sannarlega samfélag hinna glöðu og fagnandi sem Vörðurinn hafði talað um. Þetta var samfélag sem vissi af þeim volduga mætti sem því var gefinn til að vinna úr möguleikunum og gerði sér grein fyrir hlutverkinu sem því er ætlað í endurreisn hrynjandi heims. Þetta var samfélag á uppleið sem þrátt fyrir grimmilega kúgun í einum heimshluta reis óhikað og óttalaust upp sem sameinuð heild og jók getu sína til að ná markmiði Bahá‘u‘lláh um frelsun mannkyns undan oki hörmulegustu kúgunar. Í þeim hátt í áttatíu þúsund þátttakendum sem sóttu ráðstefnurnar sáum við hinn einstaka átrúenda ganga fram á svið sögunnar, algjörlega fullvissaðan um virkni aðferðanna sem áætlunin styðst við og ótrúlega leikinn í að beita þeim. Hver einasta sál þessa mikla mannhafs bar vitni umbreytandi afli trúarinnar. Hver og einn var vitnisburður um fyrirheit Bahá‘u‘lláh þess efnis að hann myndi aðstoða alla sem risu upp af sjálfleysi og einlægni til að þjóna honum. Í hverjum og einum mátti sjá votta fyrir þeim kynstofni manna, staðföstum og hugrökkum, hreinum og helguðum, sem fyrirhugað er að þróast kynslóð fram af kynslóð undir beinum áhrifum opinberunar Bahá‘u‘lláh. Í þeim sáum við fyrstu ummerki um uppfyllingu þeirrar vonar sem við létum í ljós í upphafi áætlunarinnar að uppbyggjandi áhrif trúarinnar myndu ná til hundruð þúsunda með tilstyrk þjálfunarferlisins. Allt bendir til þess að fjöldi markvissra vaxtaáætlana um heim allan verði kominn yfir 1000 í lok Ridvan tímans. Hvað getum við annað gert við upphaf þessarar mestu fagnaðarhátíðar en að lúta höfði í auðmýkt frammi fyrir Guði og færa honum þakkir fyrir óendanlega gjafmildi hans til handa samfélagi hins mesta nafns. Allsherjarhús réttvísinnar

Allsherjarhús réttvísinnar

Table of Contents: Albanian :Arabic :Belarusian :Bulgarian :Chinese_Simplified :Chinese_Traditional :Danish :Dutch :English :French :German :Hungarian :Íslenska :Italian :Japanese :Korean :Latvian :Norwegian :Persian :Polish :Portuguese :Romanian :Russian :Spanish :Swedish :Turkish :Ukrainian :